Eftirfarandi vinnuhópar voru settir á legg í september 2005:
Skemmtihópur
Fræðslu-og hvatningarhópur
Tölfræðihópur
Rithópur
Í vinnuhópunum starfa :
| Skemmtihópur | Fræðslu- & hvatningarhópur | Tölfræðihópur | Rithópur |
| Laufey Bjarnadóttir | Anna Ingólfsdóttir | Birna Guðmundsdóttir | Auður Sigr. Kristinsdóttir |
| Margrét Ásgeirsdóttir | Auður Ösp Jónsdóttir | Hólmfríður Pálsdóttir | Alda Karen Svavarsdóttir |
| María Guðnadóttir | Birna Íris Jónsdóttir | Halla Einarsdóttir | Barbara Ósk Ólafsdóttir |
| Marta K. Lárusdóttir | Guðrún Bjarnadóttir | Laufey Hannesdóttir | Erla Rós Gylfadóttir |
| Jóna Pálsdóttir | Rósa Ólafsdóttir | Gyða Einarsdóttir | |
| Kristín H. Guðmundsd. | Þóra Halldórsdóttir | ||
| Sigrún E. Ármannsdóttir | |||
| Sólveig H.Sigurðardóttir | |||
| Þórunn Óskarsdóttir |
Markmið UT-tölfræðihópsins:
Að stuðla að því að fjölga konum í upplýsingatækni í íslensku samfélagi með því að safna og vinna úr gögnum sem geta sagt betur til um hverjar eru orsakir sífelldrar fækkunar kvenfólks á sviði upplýsingatækniundanfarin ár.
Fyrsta skrefið er að taka saman það sem til er og safna viðbótar-upplýsingum frá Háskóla Íslands, Háskóla Reykjavíkur og Háskólanum á Akureyri, um nemendur í upplýsingatækni sbr.hér að neðan..
- Nemendur sem innritast í framhaldsnám í upplýsingatækni, hvaða ár, frá hvaða framhaldsskólum, hvaða brautum, einkunnir úr framhaldskóla, aldur, kyn
- Nemendur sem útskrifast úr framhaldsnámi í upplýsingatækni, hvaða ár, hvaða gráða (BS, MS, Doktor), hvaða brautum, hvaða kúrsa þeir tóku, einkunnir, aldur, kyn
- Fá upplýsingar um fjölda kvenna vs. karla sem innritast í framhaldsnám í upplýsingatækni.
Þeir sem hafa gögn undir höndum eða sem hópurinn getur haft samband við, til að hjálpa til við öflun ofangreindra upplýsinga, eru vinsamlegast beðnir um að gefa sig fram við Hólmfríði Pálsdóttur.


