Kynningar í framhaldsskólum

Þessa dagan eru UT konur á ferðinni í framhaldsskólum landsins og sýna nýja kynningarmyndbandið sitt (sjá hér að neðan).
Hafirðu áhuga á að sjá myndbandið, þá mun það á næstu dögum m.a. verða sett inn á Facebook og Youtube.

Viltu spyrja eða spjalla?
Komdu og vertu með okkur á Facebook.  UT-konur og Tæknitátur eru á Facebook.com
Eða hafðu samband við okkur í stjórninni : http://utkonur.wordpress.com/um-stjornina/

Frumsýning á kynningarmyndbandi

 

Þér er boðið á frumsýningu mánudaginn 23. mars kl.17:00Engjateig 9, salnum á neðstu hæð.

Frumsýnt verður kynningarmyndband sem UT-konur, félag kvenna í upplýsingatækni hafa gert.

Myndbandinu er ætlað að gefa innsýn í líf og störf kvenna sem starfa innan tölvu- og upplýsingatækninnar.

Tilgangur myndbandsins er að vekja áhuga ungra stúlkna á möguleikum og fjölbreytileika þeirra starfa sem bjóðast í faginu, en myndbandið verður sýnt á kynningum í framhaldsskólum og víðar á næstunni.

Tekin eru viðtöl við konur sem starfa á ólíkum sviðum innan fagsins og vonumst við þannig til að gefa áhugaverða sýn á fagið og þau störf sem í boði eru.

 

Í myndbandinu koma fram:

Ari Kristinn Jónsson, HR
Björk Ragnarsdóttir, Alcan
Elín Elísabet Torfadóttir, Calidris
Halla Kolbeinsdóttir, NOVA
Harpa Einarsdóttir, CCP
Helga Waage, Mobilitus
Jónheiður Ísleifsdóttir, Íslensk Erfðagreining
Sigrún Eva Ármannsdóttir, Eskill
Sigrún Þöll Þorsteinsdóttir, Kögun
Sirrý Hallgrímsdóttir, SJÁ
Þórdís Þórsdóttir, Íbúðalánasjóður

Allir velkomnir og sjálfsagt að bjóða unga fólkinu í kringum ykkur með.

Stjórn UT-kvenna
:
Þóra Halldórsdóttir, formaður
Dísa Anderiman
Hrönn Þormóðsdóttir
Marta Kristín Lárusdóttir
Sigríður M. Björgvinsdóttir
Steinunn M. Sigurbjörnsdóttir

Fræðslu-og kynningarmyndband UT-kvenna

UT-konur eru að vinna að gerð kynningarmyndbands sem ætlað er að gefa innsýn í líf og störf kvenna sem starfa innan tölvu-og upplýsingatækninnar.
Tilgangur myndbandsins er að vekja áhuga ungra stúlkna á möguleikum og fjölbreytileika þeirra starfa sem bjóðast í faginu.
Tekin eru viðtöl við konur sem starfa á ólíkum sviðum innan fagsins og vonumst við þannig til að gefa áhugaverða sýn á fagið og þau störf sem í boði eru.
Viðmælendur eru beðnir að lýsa hefðbundnum degi í vinnunni, hvað þær eru að fást við og hvað það er sem gerir starfið áhugavert.
Myndbandið munum við síðan sýna á kynningum í framhaldsskólum og jafnvel víðar.
Jafnframt verður myndbandið væntanlega sett inn á netið þannig að það verði sýnilegt fleirum.

EFLUM SKÖPUNARKRAFTINN

Við ætlum að koma saman miðvikudaginn 5. nóvember og eiga skemmtilega og notalega stund saman þar sem við lærum að efla sköpunarkraftinn undir handleiðslu Guðbjargar Gissurardóttur.
Guðbjörg hefur áralanga reynslu af því að vinna með skapandi og frjóa hugsun og verður því spennandi að fá hana til liðs við okkur.

 

 

Guðbjörg útskrifaðist frá MHÍ sem grafískur hönnuður 1990.
Hún fór í meistara nám í “communication design„ í Pratt Institute, New York
og hefur starfað við grafíska hönnun og auglýsingar bæði á íslandi og NY.
Guðbjörg hefur kennt “skapandi hugsun„ bæði í LHÍ og í Pratt.

Ásamt kennslunni hefur hún haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða fyrir fyrirtæki
og einstaklinga, þar sem sköpunargáfann er í fyrirrúmi.

Árið 2003 gaf hún út matreiðslubókina “Hristist fyrir notkun” þar sem fólk er hvatt til að nota
sköpungargáfuna í eldhúsinu.


Guðbjörg ætlar að kenna okkur að efla sköpunarkraftinn til gagns fyrir okkur sjálfar og þá sem eru í kringum okkur.
Þetta er líka skemmtileg leið til að læra að vinna á skapandi hátt með málefni í daglegu lífi jafnt í vinnu sem heima.
Svo erum við allar konur …. og eins og staðan í dag sýnir okkur er verið að setja konur í ríkara mæli í ábyrgðarstöður…. þannig að það er ekki úr vegi að efla þennan kraft sem í okkur býr enn frekar til að takast á við það sem í vændum er.

Dagskrá kvöldsins verður í grófum dráttum þannig í tveimur liðum:
-        Hvernig nýtum við sköpunarkraftinn daglega í starfi okkar
-        Prófum að nota aðferðina til að koma með nýjar hugmyndir að því hvernig við kynnum ungu stúlkunum störf okkar/starfsumhverfi

Staður og stund:
Háskólinn í Reykjavík, miðvikudaginn 5. Nóvember kl.20:00-22:00.

Fjölmennum og endilega takið með ykkur vinkonur ykkar í UT-geiranum

 

 

Fréttir af ársfundi UT-kvenna

Finna má skýrslu stjórnar fyrir starfsárið 2007-2008 undir “SKýrslur” hér á síðunni.

Kosið var í stjórn og er ný stjórn þannig skipuð:

Þóra Halldórsdóttir, formaður
Dísa Anderiman,
Hrönn Þormóðsdóttir,
Kolbrún Svala Hjaltadóttir,
Marta Kristín Lárusdóttir
Sigríður Magnea Björgvinsdóttir,
Steinunn M. Sigurbjörnsdóttir.

Úr stjórn gengu:
Elín Granz, Jóna Pálsdóttir, Sigrún Þöll Þorsteinsdóttir og Þórunn Óskarsdóttir.
Er þeim þakkað gott og óeigingjarnt starf.

Á fundinum var lögð fram tillaga að breytingum á stofnsamþykktum og var hún samþykkt.
Kallast þær nú félagssamþykktir.
Undir “SKýrslur” hér á síðunni má finna þessar félagssamþykktir sem samþykktar voru á aðalfundinum.

Skrifað í Fréttir. Comments Off

Gleðilegt sumar !

Óskum ykkur öllum gleðilegs sumars með þökk fyrir veturinn.

Ársfundur UT-kvenna var haldinn í gær.
Kosið var í stjórn og farið yfir það sem helst hefur verið á döfinni á árinu.
Sköpuðust skemmtilegar umræður um hin ýmsu málefni.
Að loknum aðalfundarstörfum hélt Ólafur Andri erindi sem vakti mikla lukku.
Var fundurinn í heild bæði skemmtilegur og fróðlegur.

Nánar um fundinn og skýrslu stjórnar síðar.

Skrifað í Fréttir. Comments Off

Aðalfundur Félags kvenna í upplýsingatækni verður haldinn miðvikudaginn 23. apríl, kl. 17 í Háskólanum í Reykjavík (HR) við Ofanleiti

 

Dagskrá:

  • Skýrsla stjórnar fyrir árið 2007-2008
  • Breytingatillaga á stofnsamþykktum lögð fram til samþykktar
  • Stjórnarkjör
  • Önnur mál

Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum mun Ólafur Andri Ragnarsson halda spennandi erindi, þar sem hann mun fjalla um hvernig tæknin hefur þróast og hvaða lögmál liggja þar að baki.

 

Léttar veitingar verða í boði HR.

 

Breytingartillaga á Stofnsamþykktum.

Hér má skoða breytingatillöguna annars vegar og hins vegar stofnsamþykktirnar eins og þær eru í dag.

Breytingartillaga

Stofnsamþykktir 

 

 

Í stjórn sitja nú:

  • Þóra Halldórsdóttir, formaður
  • Hrönn Þormóðsdóttir
  • Jóna Pálsdóttir
  • Marta Lárusdóttir
  • Sigrún Þöll Þorsteinsdóttir
  • Þórunn Óskarsdóttir

 

Úr stjórn ganga:

  • Jóna Pálsdóttir
  • Sigrún Þöll Þorsteinsdóttir
  • Þórunn Óskarsdóttir
  • Elín Gränz gekk úr stjórn á miðjum vetri vegna annarra starfa

 

Félagsmenn geta gefið kost á sér í stjórn félagsins.

Nú þegar hafa 5 konur gefið kost á sér til stjórnarsetu.

Á fundinum verður kosið á milli frambjóðenda.

Kosnir verða tveir aðalmenn til tveggja ára og tveir varamenn til eins árs.

 

 

Hlökkum til að sjá ykkur á skemmtilegum og áhugaverðum fundi.

 

Eftir fundinn er upplagt að skella sér á Kringlukrána og skemmta sér áfram.

 

Kveðja

Stjórnin 

Skrifað í Fréttir. Comments Off

Aðalfundur UT-kvenna 23. apríl kl.17:00

Takið frá miðvikudaginn 23. apríl, en þá verður aðalfundur UT-kvenna haldinn kl. 17:00 í Háskólanum í Reykjavík (HR) við Ofanleiti.
Meðal annars verða breytingar á félagssamþykktum lagðar fram til samþykktar og kosið veður í nýja stjórn.
Spennandi fyrirlestur verður að loknum aðalfundarstörfum.
Nánari upplýsingar í næstu viku.

Skrifað í Fréttir. Comments Off

Fjörutíu ára afmæli Skýrslutæknifélagsins fagnað

Skýrslutæknifélag Íslands – SKY, fagnaði 40 ára afmæli sínu síðast liðinn föstudag og hélt af því tilefni veglegt afmælishóf á Hilton Nordica hótel.

UT-konur létu sig ekki vanta og mættu til samfagnaðarins.

Til hamingju með afmælið SKY !

Vel heppnaður morgunverðarfundur

UT-konur héldu morgunverðarfund miðvikudaginn 27. febrúar en fundurinn var haldinn í húsakynnum Microsoft við Engjateig.

Í upphafi fundar ávarpaði Sveinn Benediktsson fundargesti fyrir hönd Microsoft.

Hann sýndi okkur m.a. myndband um konur hjá Microsoft, en þar er sérstök áhersla lögð á að konur þroski sig í starfi.

Gestur fundarins, Guðný Káradóttir, sagði okkur svo frá því sem hún og félagar hennar hjá Gagarín eru að gera.

Fyrirtækið Gagarín sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu á stafrænu efni fyrir gagnvirka miðla. Viðfangsefnin eru því margmiðlun af ýmsum toga, ráðgjöf, hönnun/viðmótshönnun, framleiðsla á efni og forritun á sérlausnum.

Áhersla er lögð á “User-centered-design” þar sem unnið er náið með notendum í öllum verkefnum.

Við upphaf verkefnis er áhersla lögð á að skilja aðstæður notenda og við gerð þarfagreiningar hitta þróunaraðila fulltrúa notenda, þannig að notandinn er með í ferlinu.

Bakgrunnur starfsmanna innan Gagarín er margvíslegur, en auk forritara eru þar hönnuðir og hugmyndasmiðir af ýmsum toga, sem sýnir að upplýsingatækniiðnaðurinn þarf meira en bara forritara :)

Fyrirlestur Guðnýjar var afar áhugaverður.

Skrifað í Fréttir. Comments Off