Myndband – Fræðsluefni

UPPLÝSINGATÆKNI – FAG ÁN LANDAMÆRA – KYNNINGARMYNDBAND
UT-konur, félag kvenna í upplýsingatækni, luku nú á vordögum gerð myndbands sem ætlað er að vekja áhuga ungra stúlkna á möguleikum og fjölbreytileika þeirra starfa sem bjóðast innan upplýsingatækninnar og slá á þann útbreidda misskilning að fagið sé bara fyrir stærðfræðiséní eða nörda.
Tekin voru viðtöl við konur sem starfa á ólíkum sviðum innan fagsins og vonumst við þannig til að gefa áhugaverða sýn á fagið og þau störf sem í boði eru.
Titill myndbandsins er „Upplýsingatækni – Fag án landamæra“.
Myndbandið má nálgast á vefsíðu SKY á slóðinni:
http://www.sky.is/utkonur-myndband.html

KYNNINGAR Í FRAMHALDSSKÓLUM
Haldnar hafa verið kynningar á myndbandinu í framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi, en UT-konur heimsóttu skólana í hádegishlé, sýndu myndbandið og ræddu við nemendur.

FRÆÐSLUPAKKI SENDUR Á ALLA GRUNN-OG FRAMHALDSSKÓLA LANDSINS
Í framhaldinu var ákveðið að senda “Fræðslupakka” til allra grunn-og framhaldsskóla landsins til að koma efninu á framfæri við stærri hóp.
Í þessum fræðslupakka er mynddiskur(DVD) með myndbandinu, upplýsingar um nám frá háskólunum auk upplýsinga um UT-konur og SKY.
Hluta af þessum skjölum má nálgast hér á síðunni.

Er það von UT-kvenna að myndbandinu verði gerð góð skil og efnið kynnt fyrir nemendum hvers skóla.

Átak sem þetta kallar á vinnu og samtakamátt margra aðila.
Jákvæð viðbrögð og velvilji fyrirtækja og viðmælenda í myndbandi auk ómældrar vinnu UT-kvenna hafa gert þetta verkefni að veruleika.
Það sýnir að þegar viljinn er til staðar og margar hendur vinna samtaka að settu marki, þá eru okkur allir vegir færir.
Vonandi skilar þetta átak sér í vaxandi áhuga ungra stúlkna á upplýsingatækninni og raungreinum yfirleitt.

UT-konur, félag kvenna í upplýsingatækni, er faghópur innan SKY, Skýrslutæknifélags Íslands.
Allt starf UT-kvenna við vinnslu þessa fræðsluefnis var unnið í sjálfboðavinnu og það sama á við um þá sem fram komu í myndbandinu, en til framleiðslu og fjölföldunar á mynddisk og útsendingu efnis nutum við stuðnings frá styrktaraðilum.
Samtök Iðnaðarins er aðalstyrktaraðili okkar en einnig fengum við styrk frá Háskólanum í Reykjavík og SKY.

UT-konur þakka öllum aðilum sem komið hafa að gerð myndbandsins og fræðslupakkans í heild, bæði þeim sem fram komu í myndbandinu og öllum þeim sem á einhvern hátt hafa styrkt okkur eða veitt okkur stuðning og aðstoð á einhvern hátt.

Bestu þakkir til ykkar allra!

 

Kynningarmyndband UT-kvenna er hægt að skoða á slóðinni:
http://www.sky.is/utkonur-myndband.html

Þar er einnig hægt að hlaða myndbandinu niður.

Upplýsingaefni sem sent var með “Fræðslupakka” til skóla landsins:
KYNNING Á FRÆÐSLUPAKKA
Upplýsingar UT-konur
Upplýsingar um nám í Tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík
Upplýsingar um nám í Tölvunarfræði við Háskóla Íslands