Hvað er UT

Hvað er upplýsingatækni?

Upplýsingatækni fjallar um þætti sem lúta að skráningu, meðhöndlun,vinnslu og framsetningu gagna og upplýsinga sem notuð eru á flestum sviðum samfélagsins þar sem unnið er með gögnin með aðstoð tækninnar. “Með hugtakinu upplýsingatækni er vísað í það að beitt er ákveðinni tækni við gagnavinnslu og með hugtakinu tækni er átt við tölvutækni, fjarskiptatækni og rafeindatækni” (Menntamálaráðuneytið. 1996. bls. 13). Nám og störf í upplýsingatækni eru fjölbreytt og henta konum ekki síður en körlum. Störfin eru margvísleg og fæstir sitja langtímum einir við tölvu og forrita heldur vinna við skapandi verkefni í samvinnu við notendur, viðskiptavini og samstarfsmenn. Störfin krefjast því m.a. samskiptahæfileika, skipulagshæfileika, samvinnu og góðrar þekkingar á tækninni.

Comments Off