Um UT-Konur

Faghópur UT-kvenna í upplýsingatækni var stofnaður í Háskólanum í Reykjavík miðvikudaginn 25. maí 2005. Faghópur UT-kvenna er hýstur af Ský en starfar að mestu sjálfstætt með eigin samþykktir og stjórn. 

Á vegum UT-kvenna starfa fjórir vinnuhópar: Skemmtihópur, Fræðslu-& hvatningarhópur, Tölfræðihópur og Rithópur. Allar konur sem áhuga hafa á að efla konur í upplýsingatækni eru velkomnar í hópinn og geta skráð sig á utkonur@gmail.com 

Markmið faghópsins er:
· að stuðla að fjölgun kvenna í upplýsingatækni· að stuðla að fjölgun kvenna í háskólanámi í tölvunarfræði og kerfisfræði
· að stuðla að fjölgun kvenna í stjórnunarstöðum og stjórnum fyrirtækja
· að vera vettvangur skoðanaskipta um störf kvenna í upplýsingatækni
· að auka sýnileika kvenna í upplýsingatækni

Í stjórn UT-kvenna 2008-2009 eru:

 sequence20420copy

Þóra Halldórsdóttir, formaður totah[hja]simnet.is
Dísa Anderiman, disa[hja]marimo.is
Hrönn Þormóðsdóttir, hronnthor[hja]simnet.is
Marta Kristín Lárusdóttir, marta[hja]ru.is
Sigríður M. Björgvinsdóttir, sirry[hja]sjova.is
Steinunn M. Sigurbjörnsdóttir, steinunn[hja]valitor.is

Félagsaðild: Þeir sem nú þegar eru félagar í Ský geta einnig verið meðlimir í faghópnum með því að tilkynna sig til skrifstofu félagsins en einnig er hægt að vera eingöngu félagi í faghópnum. Ef valin er sú leið að vera eingöngu félagi í faghópnum þá gildir a.m.k. þetta fyrir félagsmenn:

1. Lægri ráðstefnugjöld á þá atburði sem faghópurinn stendur fyrir.
2. Áskrift að Tölvumálum, en faghópurinn mun fá eyrnamerkt pláss fyrir greinar eða aðra umfjöllun um upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu.
3. Aðstoð við að koma á fót vinnuhópum eða tengslanetum sem samræmast markmiðum faghópsins.
4.Tækifæri til að starfa í/með undirbúningsnefndum ráðstefna og funda faghópsins.

 
Comments Off