Gleðilegt sumar!

Stjórn UT-kvenna hefur lokið starfsári sínu í ár.
Okkar stærsta verkefni í vetur var myndbandið “Upplýsingatækni – Fag án landamæra” sem við gerðum og sýndum í framhaldsskólum á suðvesturhorni landsins og dreifðum síðan til allra grunn-og framhaldsskóla landsins.
Myndbandið hefur fengið góðar viðtökur og það verður gaman að fylgjast með næsta vetur þegar skólar um allt land fara að sýna myndbandið meðal sinna nemenda.

 
Stjórn UT-kvenna starfsárið 2009-2010 er þannig skipuð:
Marta Lárusdóttir, formaður
Dísa Anderiman 
Steinunn M. Sigurbjörnsdóttir
Ása Björk Stefánsdóttir
María Hlín Steingrímsdóttir

Varamenn:
Monica Roismann
Hrefna Gunnarsdóttir

 
Með ósk um gleðilegt sumar og þökk fyrir góðan vetur!

Þóra Halldórsdóttir
fráfarandi formaður UT-kvenna