Aðalfundur UT-kvenna var haldinn í gærkveldi

Fráfarandi formaður, Þóra Halldórsdóttir, flutti skýrslu stjórnar og fundargestir fengu að sjá myndbandið okkar, Upplýsingatækni – Fag án landamæra.
Síðan var kosið til stjórnar og að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum leiddu Halldór Þorgeirsson og Guðný Halldórsdóttir okkur um ævintýraheima kvikmyndanna!
Kynntu þau okkur hvernig tæknin er notuð m.a. við undirbúning áður en nokkuð er kvikmyndað, en mikil vinna er lögð í undirbúningsvinnuna þar sem allt er kortlagt og skipulagt til hins ítrasta. Sé þessum hluta vel sinnt þá nýtist betur sá tími sem fer í sjálfa kvikmyndatökuna og þannig má spara verulega.
Var bæði fróðlegt og skemmtilegt að hlýða á þau og vonandi fáum við að heyra meira frá þeim síðar.

Er ljóst að hugbúnaðariðnaðurinn getur lært heilmikið af vinnubrögðum sem viðhöfð eru í kvikmyndaheiminum því svipuð lögmál gilda þar hvað varðar hvernig verkefni ganga eftir því hvort vinna var lögð í undirbúningsvinnu eður ei.

Ef við leggjum vinnu í greiningu og hönnun áður en við forritum þá er ekki þörf á eins löngum tíma í forritunarvinnu og ella!