Aðalfundur UT-kvenna var haldinn í gærkveldi

Fráfarandi formaður, Þóra Halldórsdóttir, flutti skýrslu stjórnar og fundargestir fengu að sjá myndbandið okkar, Upplýsingatækni – Fag án landamæra.
Síðan var kosið til stjórnar og að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum leiddu Halldór Þorgeirsson og Guðný Halldórsdóttir okkur um ævintýraheima kvikmyndanna!
Kynntu þau okkur hvernig tæknin er notuð m.a. við undirbúning áður en nokkuð er kvikmyndað, en mikil vinna er lögð í undirbúningsvinnuna þar sem allt er kortlagt og skipulagt til hins ítrasta. Sé þessum hluta vel sinnt þá nýtist betur sá tími sem fer í sjálfa kvikmyndatökuna og þannig má spara verulega.
Var bæði fróðlegt og skemmtilegt að hlýða á þau og vonandi fáum við að heyra meira frá þeim síðar.

Er ljóst að hugbúnaðariðnaðurinn getur lært heilmikið af vinnubrögðum sem viðhöfð eru í kvikmyndaheiminum því svipuð lögmál gilda þar hvað varðar hvernig verkefni ganga eftir því hvort vinna var lögð í undirbúningsvinnu eður ei.

Ef við leggjum vinnu í greiningu og hönnun áður en við forritum þá er ekki þörf á eins löngum tíma í forritunarvinnu og ella!

Minnum á aðalfund UT-kvenna í kvöld, kl.20:00, í Háskólanum í Reykjavík

Dagskrá:
• Skýrsla stjórnar fyrir árið 2008-2009
• Stjórnarkjör, kjósa þarf formann og til stjórnar
• Önnur mál

Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum munu Baltasar Kormákur og Guðný Halldórsdóttir leikstjórar og Halldór Þorgeirsson, kvikmyndaframleiðandi kynna okkur notkun tækni í kvikmyndagerð.

Staður og stund:
Háskólinn í Reykjavík við Ofanleiti, 3. hæð, stofa 338, kl.20:00

Hlökkum til að sjá þig á skemmtilegum og áhugaverðum fundi.

FRÆÐSLUPAKKI SENDUR Á ALLA GRUNN-OG FRAMHALDSSKÓLA LANDSINS

KYNNINGARMYNDBAND
UT-konur, félag kvenna í upplýsingatækni, luku nú á vordögum gerð myndbands sem ætlað er að vekja áhuga ungra stúlkna á möguleikum og fjölbreytileika þeirra starfa sem bjóðast innan upplýsingatækninnar og slá á þann útbreidda misskilning að fagið sé bara fyrir stærðfræðiséní eða nörda.
Tekin voru viðtöl við konur sem starfa á ólíkum sviðum innan fagsins og vonumst við þannig til að gefa áhugaverða sýn á fagið og þau störf sem í boði eru.
Titill myndbandsins er „Upplýsingatækni – Fag án landamæra“.
Myndbandið má nálgast á vefsíðu SKY á slóðinni:
http://www.sky.is/utkonur-myndband.html

KYNNINGAR Í FRAMHALDSSKÓLUM
Haldnar hafa verið kynningar á myndbandinu í framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi, en UT-konur heimsóttu skólana í hádegishlé, sýndu myndbandið og ræddu við nemendur.

FRÆÐSLUPAKKI SENDUR Á ALLA GRUNN-OG FRAMHALDSSKÓLA LANDSINS
Í framhaldinu var ákveðið að senda “Fræðslupakka” til allra grunn-og framhaldsskóla landsins til að koma efninu á framfæri við stærri hóp.
Í þessum fræðslupakka er mynddiskur(DVD) með myndbandinu, upplýsingar um nám frá háskólunum auk upplýsinga um UT-konur og SKY.
Hluta af þessum skjölum má nálgast hér á vefsíðunni, undir “Myndband – Fræðsluefni”

Er það von UT-kvenna að myndbandinu verði gerð góð skil og efnið kynnt fyrir nemendum hvers skóla.

Átak sem þetta kallar á vinnu og samtakamátt margra aðila.
Jákvæð viðbrögð og velvilji fyrirtækja og viðmælenda í myndbandi auk ómældrar vinnu UT-kvenna hafa gert þetta verkefni að veruleika.
Það sýnir að þegar viljinn er til staðar og margar hendur vinna samtaka að settu marki, þá eru okkur allir vegir færir.
Vonandi skilar þetta átak sér í vaxandi áhuga ungra stúlkna á upplýsingatækninni og raungreinum yfirleitt.

UT-konur, félag kvenna í upplýsingatækni, er faghópur innan SKY, Skýrslutæknifélags Íslands.
Allt starf UT-kvenna við vinnslu þessa fræðsluefnis var unnið í sjálfboðavinnu og það sama á við um þá sem fram komu í myndbandinu, en til framleiðslu og fjölföldunar á mynddisk og útsendingu efnis nutum við stuðnings frá styrktaraðilum.
Samtök Iðnaðarins er aðalstyrktaraðili okkar en einnig fengum við styrk frá Háskólanum í Reykjavík og SKY.

UT-konur þakka öllum aðilum sem komið hafa að gerð myndbandsins og fræðslupakkans í heild, bæði þeim sem fram komu í myndbandinu og öllum þeim sem á einhvern hátt hafa styrkt okkur eða veitt okkur stuðning og aðstoð á einhvern hátt.

Bestu þakkir til ykkar allra!

f.h. stjórnar UT-kvenna
Þóra Halldórsdóttir
Formaður UT-kvenna

Aðalfundur – stjórnarkjör

Hvetjum áhugasamar til að bjóða sig fram til stjórnar á aðalfundinum sem haldinn er á morgun, þriðjudaginn 19. maí kl. 20:00 í Háskólanum í Reykjavík.

Kjósa þarf nýjan formann og til stjórnar.

Tækni í kvikmyndagerð

Á aðalfundi UT-kvenna verður spennandi fyrirlestur, þar sem Baltasar Kormákur og Guðný Halldórsdóttir leikstjórar og Halldór Þorgeirsson, kvikmyndaframleiðandi ætla að kynna okkur notkun tækni í kvikmyndagerð.

Hvernig er tæknin notuð í kvikmyndagerð? Hvernig hefur sú notkun breyst? Hvaða forrit eru notuð til að klippa og plana? Hvaða forrit eru notuð í framleiðsluferlinu? Hversu mikið notfæra þau sér tæknina? Af hverju? Hvernig er hægt að nota storyboard og hvaða leiðir er hægt að fara þar?

Nánari upplýsingar um fyrirlesara:
Baltasar Kormákur leikstjóri, leikari, framleiðandi, handritshöfundur
http://www.allmovie.com/artist/baltasar-kormkur-223283/bio
http://www.imdb.com/name/nm0466349/maindetails
sjá upplýsingar á heimasíðu http: //www.blueeyes.is/

Guðný Halldórsdóttir leikstjóri, framleiðandi, handritshöfundur
http://is.wikipedia.org/wiki/Gu%C3%B0n%C3%BD_Halld%C3%B3rsd%C3%B3ttir
Halldór Þorgeirsson
fyrirtæki : Umbi, síðasta mynd sem þau gerðu: http://www.myspace.com/vedramot

Fundurinn er haldinn þriðjudaginn 19. maí kl.20:00, í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti.

Dagskrá:
• Skýrsla stjórnar fyrir árið 2008-2009
• Stjórnarkjör
• Önnur mál
Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum verður spennandi fyrirlestur í höndum Baltasar Kormáks, Guðnýjar Halldórsdóttur og Halldórs Þorgeirssonar.

Vilt þú vera í stjórn UT-kvenna?
Við hvetjum þig til að koma og starfa með okkur í stjórninni, en kosið verður í stjórn til næsta árs á aðalfundinum.

Hlökkum til að sjá þig á skemmtilegum og áhugaverðum fundi.

Kveðja
Stjórnin

Myndbandið – Fag án landamæra á netinu

Kynningarmyndband UT-kvenna er hægt að skoða á slóðinni:
http://www.sky.is/utkonur-myndband.html

Þar er einnig hægt að hlaða myndbandinu niður.

Aðalfundur Félags kvenna í upplýsingatækni verður haldinn þriðjudaginn 19. maí, kl.20:00, í Háskólanum í Reykjavík (HR) við Ofanleiti

Dagskrá:
• Skýrsla stjórnar fyrir árið 2008-2009
• Stjórnarkjör
• Önnur mál

Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum verður spennandi fyrirlestur.

Hlökkum til að sjá ykkur á skemmtilegum og áhugaverðum fundi.

Kveðja
Stjórnin