EFLUM SKÖPUNARKRAFTINN

Við ætlum að koma saman miðvikudaginn 5. nóvember og eiga skemmtilega og notalega stund saman þar sem við lærum að efla sköpunarkraftinn undir handleiðslu Guðbjargar Gissurardóttur.
Guðbjörg hefur áralanga reynslu af því að vinna með skapandi og frjóa hugsun og verður því spennandi að fá hana til liðs við okkur.

 

 

Guðbjörg útskrifaðist frá MHÍ sem grafískur hönnuður 1990.
Hún fór í meistara nám í “communication design„ í Pratt Institute, New York
og hefur starfað við grafíska hönnun og auglýsingar bæði á íslandi og NY.
Guðbjörg hefur kennt “skapandi hugsun„ bæði í LHÍ og í Pratt.

Ásamt kennslunni hefur hún haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða fyrir fyrirtæki
og einstaklinga, þar sem sköpunargáfann er í fyrirrúmi.

Árið 2003 gaf hún út matreiðslubókina “Hristist fyrir notkun” þar sem fólk er hvatt til að nota
sköpungargáfuna í eldhúsinu.


Guðbjörg ætlar að kenna okkur að efla sköpunarkraftinn til gagns fyrir okkur sjálfar og þá sem eru í kringum okkur.
Þetta er líka skemmtileg leið til að læra að vinna á skapandi hátt með málefni í daglegu lífi jafnt í vinnu sem heima.
Svo erum við allar konur …. og eins og staðan í dag sýnir okkur er verið að setja konur í ríkara mæli í ábyrgðarstöður…. þannig að það er ekki úr vegi að efla þennan kraft sem í okkur býr enn frekar til að takast á við það sem í vændum er.

Dagskrá kvöldsins verður í grófum dráttum þannig í tveimur liðum:
-        Hvernig nýtum við sköpunarkraftinn daglega í starfi okkar
-        Prófum að nota aðferðina til að koma með nýjar hugmyndir að því hvernig við kynnum ungu stúlkunum störf okkar/starfsumhverfi

Staður og stund:
Háskólinn í Reykjavík, miðvikudaginn 5. Nóvember kl.20:00-22:00.

Fjölmennum og endilega takið með ykkur vinkonur ykkar í UT-geiranum