Vel heppnaður morgunverðarfundur

UT-konur héldu morgunverðarfund miðvikudaginn 27. febrúar en fundurinn var haldinn í húsakynnum Microsoft við Engjateig.

Í upphafi fundar ávarpaði Sveinn Benediktsson fundargesti fyrir hönd Microsoft.

Hann sýndi okkur m.a. myndband um konur hjá Microsoft, en þar er sérstök áhersla lögð á að konur þroski sig í starfi.

Gestur fundarins, Guðný Káradóttir, sagði okkur svo frá því sem hún og félagar hennar hjá Gagarín eru að gera.

Fyrirtækið Gagarín sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu á stafrænu efni fyrir gagnvirka miðla. Viðfangsefnin eru því margmiðlun af ýmsum toga, ráðgjöf, hönnun/viðmótshönnun, framleiðsla á efni og forritun á sérlausnum.

Áhersla er lögð á “User-centered-design” þar sem unnið er náið með notendum í öllum verkefnum.

Við upphaf verkefnis er áhersla lögð á að skilja aðstæður notenda og við gerð þarfagreiningar hitta þróunaraðila fulltrúa notenda, þannig að notandinn er með í ferlinu.

Bakgrunnur starfsmanna innan Gagarín er margvíslegur, en auk forritara eru þar hönnuðir og hugmyndasmiðir af ýmsum toga, sem sýnir að upplýsingatækniiðnaðurinn þarf meira en bara forritara :)

Fyrirlestur Guðnýjar var afar áhugaverður.

Skrifað í Fréttir. Comments Off