Tölvunördar vs. Tölvugellur

Árið 2005 var gerð rannsókn á því hvers vegna fækkun sé á nemendum í uplýsingatækni (UT)  og ber hún heitið Computer Geek versus Computer Chic: IT Career and IT education.

Þar kemur einnig fram að fjöldi kvenna í upplýsingaiðnaðinum í Bretlandi er komin niður fyrir 20% og er það mikið áhyggjuefni. Mikill skortur er á nýrri þekkingu í greininni og sú spurning vakin upp hvort að fækkun hafi orðið í greininni af því að konum fer fækkandi?

Í greininni er einnig fjallað um tengls á milli kennsluaðferða í upplýsingatækni  í skólum í Bretlandi og viðhorfum nemenda hvað varðar starfsframa í greininni. Aldurinn 10-13 ára var sérstaklega skoðaður þar sem talið er að stelpu missi áhugann á UT á þessum árum.

Í stuttu máli bendir niðustaða greinarinnar meðal annars til þess að nemendur af báðum kynjum vita ekki um hvað UT snýst, þeim finnst UT “leiðinlegt” og námsefnið er einhæft.  Einnig finnst nemendum UT óspennandi og vilja fá mun meira spennandi verkefni sem vekja áhuga á greininni.