Menntun kvenna og staða í þjóðfélaginu

Berglind Eir Magnúsdóttir, Bryndís E. Jóhannsdóttir og Sigríður Ómarsdóttir skrifuðu nýlega grein um menntun kvenna og stöðu þeirra í þjóðfélaginu.

Í greininni er fjallað um kynjahlutfall í háskólum landsins og kemur meðal annars fram að konum í hópi nemenda hefur fjölgað hlutfallslega meira en körlum undanfarin ár.

“Af 44.129 nemendum á báðum skólastigum eru 25.447 konur á móti 18.682 körlum. Þegar litið er til háskólanna eykst munur milli kynjanna enn  frekar. Í háskólum landsins eru konur 62.6% nemenda en karlar 37.4%”

Í greininni er einnig fjallað um konur og pólitík þar sem kemur fram að pólitíks völd kvenna hafa ekki breyst með hækkandi menntungarstigi þeirra og að hlutur kvenna í stjónum, nefndum og ráðum ríkisins sé aðeins 30%.

Berglind, Bryndís og Sigríður fjalla einnig um kynjamismun á vinnumarkaðnum og ræða meðal annars um karla- og kvennastéttir, valdastörf og konur ásamt launamismun kynjanna.

Kemur fram í greininni að launamismunur kynjanna sé mestur á Íslandi innan aðildaríkja Evrópusambandsins og sé meðal annars ástæðan fyrir launamismuninum veik jafnréttislöggjöf, launaleynd og hin hefðbundin “kvennastörf” hafa áhrif á launamismun.

Hægt er að lesa greinina í heild sinni hér –> Menntun kvenna og staða í þjóðfélaginu