Konur hverfa úr tölvunarfræði

Ásrún Matthíasdóttir gerði rannsókn á því hver ástæðan sé afhverju konur séu að hverfa úr tölvunarfræðigeiranum. Kemur meðal annars fram að ein af ástæðunum sé að konur skorti almenna þekkingu á tölvunarfræði, þær vita ekki um hvað tölvunarfræðin snýst og hvaða tækifæri eru í greininni.

Í greininni er fjallað um að þær konur sem tóku þátt í rannsókninni hafa minni reynslu en karlmenn af tölvum og tölvunarfræðitengdum málefnum áður en þær hefja nám í háskólum og hefja þær oft námið til að “prófa” það.  Einnig koma fram hugmyndir hvað sé hægt að gera til að spyrna á móti þessari þróum og er meðal annars nefnt að bjóða upp á nýjar línur í tölvunarfræðináminu og byrja að kynna greinina fyrir stúlkur fyrr á þeirra námsferli.

Hægt er að lesa greinina í heild sinni á elconf06.dei.uc.pt

Hvað hamlar starfsframa UT kvenna

Nýlega var gerð rannsókn á því hvað konur vilja í upplýsingatæknistörfum og hvað það er sem heldur þeim niðri í UT geiranum og má hér að neðan lesa inngang rannsóknarinnar en hana má finna á portal.com vefnum.

In an attempt to address the underrepresentation of women in the information technology (IT) workforce it is important to understand the values and motivations of female professionals. Hence, the purpose of this paper is to examine career anchors of women in the IT workforce and how these factors are manifested in their careers. In doing so, we examine data from a field study of 92 female IT practitioners. Three important findings resulted from this exploration. First, technical competence and managerial competence are mutually exclusive. Second, a combination of career anchors for a given individual can be found. Third, career anchors vary in terms of temporal characteristics.

Á vef pressesc.com má lesa úrdrátt úr greininni

 

Sýning: Tvær heimildarmyndir um sögu ítalskra kvenna

Ítalska sendíráðið býður upp á  sýningu á Bellissime og Bellissime 2,
nk. laugardag, 19. maí í Norræna húsinu kl. 17:00  ásamt veitingum.
Nánari upplýsingar eru í meðfylgjandi skjali:  Bellissime
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir

Skrifað í Fréttir. Comments Off

Forsætisráðuneytið – Fundargerð

Hér að neðan er hægt að nálgast fundargerð frá fundi í forsætisráðuneytinu, þar sem staða upplýsingatæknimenntunar var rædd, ásamt glærum frá Birni Þór Jónssyni, dósent í Háskólanum í Reykjavik, þar sem hann segir frá mati sínu á stöðunni.

Fundargerð
Glærur frá Birni Þór

Mikil eftirspurn eftir tölvunarfræðingum

Í Blaðinu þann 11 maí síðastliðinn var grein frá Háskólanum í Reykjavík þar sem fjallað er um að mikil eftirspurn er eftir tölvunarfræðingum bæði hér á landi og erlendis. Dregið er fram hvað tölvunarfræðingar gera í sínu starfi ásamt því hversu mikil vöntunin er og er vísað í atvinnuauglýsingar í fjölmiðlum og er nefnt dæmi um að 18 upplýsingtatæknitengd störf voru auglýst í Morgunblaðinu þann 11. febrúar sl.
Einnig er fjallað um að samkvæmt kjarakönnun Félags tölvunarfræðiga var meðaltal fastra launa í febrúar 2006 um 461.000 kr á mánuði og til samanburðar er sagt frá því að meðallaun á Íslandi árið 2005 voru 207.800 kr. skv. Kjararannsóknanefnd.

Hér að neðan er hægt að lesa greinina í heild sinni en hún er tekin úr Blaðinu þann 11 maí 2007.

Mikil eftirspurn eftir tölvunarfræingum - góð laun  boði

Athyglisverðar greinar í apríl

Það hefur verið mikið rætt í félaginu að ein af megin ástæðum þess að konur sækja ekki í tölvunarfræðinám eða nám í upplýsingatækni sé ímyndin. Greinin Sexing up computer science fjallar meðal annars um það að þrátt fyrir að konur hafi verið að sækja í tæknigreinar þá hefur tölvunarfræðin orðið eftir og er talið að ein af ástæðum þess sé að það sé of mikill “nörda” stimpill á faginu sem hefur meiri áhrif á stúlkur en drengi.

The Daily Vidette Online fjallar þann 20 apríl síðastliðinn um ástæður þess, hvers vegna konur ættu að læra tölvunarfræði og kalla greinina Wanted: Woman computer science major. Þar er talað um að bandarískir háskólar furða sig á því hvers vegna konur sækja ekki meira í tölvunarfræði þrátt fyrir að 57% útskrifaðra séu konur. Þeirri spurningu er varpað fram hvort konum finnist óþæginlegt að vera eina konan á t.d fundum og þar með geta ekki fengið neinn stuðning frá kynsystrum sínum? Einnig er fjallað um að kannski velja konur ekki upplýsingatækni vegna þess að þær eru ekki hvattar til að kanna nýja tækni og fleira athyglisvert sem er vert að skoða.

Nörd eða ekki Nörd

Félagið gaf út bækling fyrir tveimur vikum sem var sendur til allra stúlkna á aldrinum 15 ára og 18 ára á Íslandi. Tilgangur bæklingsins er að vekja áhuga ungra stúlkna á upplýsingatækni og sýna fram á að störf í upplýsingatæknigeiranum snúast ekki eingöngu um forritun.

Félagið hefur fengið góð viðbrögð frá stofnunum og fyrirtækjum með þetta framtak og vonandi verður hann til þess að hvetja ungt fólk að velja upplýsingatæknimenntun í skólakerfinu.

Hér er hægt að nálgast bæklinginn á pdf formi. Nörd eða ekki Nörd

Nörd eða ekki Nörd

Fundur í Forsætisráðuneytinu

UT-Konur voru boðaðar til fundar hjá Forsætisráðuneytinu til að ræða þá stöðu sem nú virðist komin upp, að viðvarandi skortur er á fólki með menntun á sviði upplýsingatækni og lítill áhugi meðal framhaldsskólanema að sækja það nám.

Frumkvæði að þessum fundi kom frá Birni Þór Jónssyni í HR sagði hann á fundinum frá mati sínu á stöðunni.

Dagskrá fundarins var eftirfarandi:
- Farið var yfir og rætt um stöðu upplýsingatækninnar í skólakerfinu
- Rætt var um hvernig er hægt að safna upplýsingum til að meta stöðuna
- Rætt var um möguleg viðbrögð/aðgerðir til að bæta stöðuna.
- Kannaður var áhugi fundarmanna á að taka þátt í aðgerðum til að bæta stöðuna.

Fulltrúar frá eftirfarandi stofnunum og fyrirtækjum sátu fundinn.

Háskólinn í Reykjavík
Háskóli Íslands
Háskólinn á Akureyri
Félagið 3F
Félag tölvunarfræðinga
Skýrslutæknifélagið
Félag kvenna í upplýsingatækni
Samband upplýsingatæknifyrirtækja
Menntamálaráðuneyti
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti.
Forsætisráðuneyti

UT-Konur skráðu sig í vinnuhóp og verður fundað næst í endann september.

Ný stjórn Félags kvenna í upplýsingatækni

Ný stjórn Félags kvenna � upplýsingatækni

Aðalfundur UT-kvenna var haldinn fimmtudaginn 26. apríl 2007 kl.17:00 á 3. hæð í Háskólanum í Reykjavík . 

Dagskrá var samkvæmt samþykktum félagsins. Kjósa þurfti í stjórn og formann.

Sigrún Þöll Þorsteinsdóttir og Þóra Halldórsdóttir gáfu áfram kost á sér í stjórn félagsins.
Úr stjórn gengu Auður Sigr. Kristinsdóttir, Ásrún Matthíasdóttir, Bergþóra Karen Ketilsdóttir, Hólmfríður Pálsdóttir og María Guðnadóttir.
Fráfarandi stjórnarmeðlimum eru þökkuð vel unnin störf.
Nýir stjórnarmeðlimir eru:
Hrönn Þormóðsdóttir, Jóna Pálsdóttir, Elín Granz, Anna Ingólfsdóttir og Þórunn Óskarsdóttir.

Ásrún Matthíasdóttir lét af störfum sem formaður, en hún hefur starfað sem formaður félagsins frá stofnun þess fyrir tveimur árum.
Þökkum við Ásrúnu fyrir ötult og óeigingjarnt starf í þágu félagsins.
Nýr formaður var kjörinn Þóra Halldórsdóttir.

Í upphafi fundar ávarpaði dr. Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík fundargesti og ræddi m.a. um mögulegar leiðir til að efla áhuga ungs fólks í dag að sækja nám í tölvunarfræði.

Að lokinni hefðbundinni dagskrá fjallaði dr. Margrét Jónsdóttir, dósent við viðskiptadeild HR um Konur og tungumál – leiðin að orðræðu árangurs.
Veitingar voru í boði Háskólans í Reykjavík.